Æ Þrif

Umhverfisstefna

Æ Þrif sérhæfir sig í reglulegum ræstingum, hreingerningum, gólfviðhaldi og tengdum verkefnum. Fyrirtækið byggir á fagmennsku, framúrskarandi þjónustu og heiðarleika. Þessi umhverfisstefna nær til allrar starfsemi Æ Þrif og allra starfsmanna þess.

 

Skuldbinding og lagaumhverfi

Æ Þrif uppfyllir viðeigandi lög og reglur sem varða umhverfismál. Fyrirtækið innleiðir og viðheldur einnig kerfum sem standast kröfur eftirfarandi staðla:

  • ISO 14001:2015 – umhverfisstjórnun
  • Svansvottun – norræn umhverfismerking

Markmið og áherslur

  1. Aukin umhverfisvitund
    • Hvetjum starfsmenn til að tileinka sér vistvæn vinnubrögð.
    • Leitum stöðugt leiða til að fræða og minna á mikilvægi umhverfisverndar.

  2. Ábyrg nýting auðlinda
    • Veljum hreinsiefni og verkferla sem draga úr neikvæðum áhrifum á umhverfið.
    • Vinnum markvisst að minnkun úrgangs og notum auðlindir skynsamlega.

  3. Mælingar og umbætur
    • Setjum fram mælanleg markmið til að draga úr mengun og kolefnisspori.
    • Förum reglulega yfir árangur og leitum stöðugt tækifæra til umbóta.

Ábyrgð og innleiðing

  • Stjórnendur
    Halda utan um innleiðingu og eftirfylgni með stefnu, fræða starfsmenn um umhverfisáhrif og tryggja að viðeigandi verkferlar séu virtir.

  • Starfsmenn
    Sækja nauðsynlega fræðslu, vinna eftir settum verklagsreglum og stuðla sjálfir að umbótum með virkri þátttöku og ábendingum.